sunnudagur, 3. maí 2009

Varden í gær

Það er búin að vera aldeilis bongó blíða hér í Lófóten síðustu dagana. Við ákváðum nokkur að skella okkur í laugardagstúr í gær. Fórum við uppí Småtindan hér rétt fyrir ofan bæin og var stefnan tekin á toppinn Varden.

Sólin skein og það var svo heitt að við gengum í stuttbuxum og strákarnir berir að ofan. Mér tókst að sjálfsögðu að sólbrenna mig en er ekki lengur svo rauð í framan og loksins byrjuð að fá smá tan.

Skýin komu reyndar fram þegar við náðum á toppinn en við nutum þess samt að sitja á toppnum eftir akkt erfiðið upp og fengum okkur einn kaldann. Svo var rennt sér niður í æðislegu vor slöshi ýmist í þelamerkur stíl, með fastan hæl eða á bretti.

Þegar við komum niður byrjaði að rigna eins og helt væri úr fötu og vorum við bæði rennandi vot og sólbrennd þegar við komum heim.

Enn einn frábær dagur í Lófóti.

Hér eru nokkar myndir. Enjoy.

















Kveðja, Anna Guðbjört.

fimmtudagur, 30. apríl 2009

Geitgaljen og tannvesen.

Fór til tannlæknis í gær. Átti að vera frábær tannlækna tími. Ætlaði að fá nýja tönn og endanlega fá colgate smile. En nei. Endaði með blóðugan kjaft og sauma. Aftur.





Í dag fórum við bekkurinn á fjall sem heitir Geitgaljen sem er eitt flottasta fjallið hér á svæðinu. Æðiselgur dagur með frábæru veðri og með frábæru færi.





















Kv. Anna sólbrennda.

mánudagur, 27. apríl 2009

Hæjsan

Já allt á fullu, tímin flígur.

Trúi því varla að Lófótenárið er brátt á enda. Vil helst ekki hugsa um það.

En þar sem hún mamma góða var svo sæt að senda mér myndavélina sína hef ég lofað að vera dugleg að taka myndir og get stolt sagt að ég hef staðið við mitt.

Við bekkurinn fórum í nokkura daga roadtrip núna í síðustu viku. Ofsa gaman þrátt fyrir skítaveður. Klifruðum nokkur Hamaröuskaftet sem var bæði skemmtileg og lærdómsrík upplifun. Við vorum reyndar ansi óheppin með veður og urðum gegnsósa. En gaman þó. Nú virðist sem veðrið ætli að brosa við okkur næstu dagana.

Hér eru myndir úr roadtrippinu og svo nokkrar myndir frá í dag en við kíktum í grjótglímu á svæði sem heitir Under Præsten.

Njótið.









































Hlakka til þess að sjá ykkur eftir nokkrar vikur. Knús á línuna.

Kveðja, Anna Guðbjört.

laugardagur, 18. apríl 2009

Long time no blog

Já sælt veri fólið,

það er aldeilis langt síðan síðast, biðst afsökunar á því. Aðalega hef ég ekki bloggað vegna myndaskorts. Er myndavélalaus hérna úti, eða hef haft gamla analog myndavél sem ég hef soldið verið að taka myndir með en hef ekki haft efni á því að framkalla filmurnar.
Nú er mamma góða búin að lána mér nýju stæfrænu myndavélina sína svo að ég get verið dugleg að taka myndir.

Það hefur mikið á dagana drifið hérna úti og við búin að vera mikið uppí fjöllunum við hina og þessa iðju, þó mest skíðaferðir.

Í páskafrínu fórum við nokkrar vinkonurnar upp til Tromsö. Einstaklega skemmtilegur bær. Fékk einnig tækifæri til þess að heimsækja frænku mína hana Guðrúnu sem býr ásamt sambýlismanni sínum og syni þeirra í yndislega fallegum litlum bæ á Kvaloy sem heitir Ersfjordbotn.

Hér eru nokkrar myndir úr ferðinni.











Hérna eru svo nokkrar myndir frá því dag teknar hérna við skólan og svo fórum við Ingrid inn til Svolvær og skelltum okkur á kaffihús. Þegar við komum heim fórum við nokkur úr bekknum niður á sólbaðsstaðinn okkar sem er á prívat bryggjunni okkar og sleiktum sólina og veiddum krabba. Fengum reyndar enga krabba.


























Núna á þriðjudaginn leggjum við af stað í vikulanga klifur/skíðaferð. Förum yfir til Hamaröy, klifrum þar í nokkra daga og keyrum svo suður í átt að Bodö og finnum okkur einhverja flotta toppa til þess að skíða á. Tökum svo ferju frá Bodö til Moskenes og keyrum svo upp eftir Lofoten með klifur/grjótglímupásum þar sem hentar.

Eftir að við komum til baka úr þeirri ferðinni förum við svo í nokkurra daga siglinu um Lofoten og tökum skíðin með. Verður frábært. Hlakkar mikið til þeirrar upplifunar. Svo er skólin bara næstum því búin. Trúi því varla. Verður gaman að koma heim en á sama tíma mun ég sakna allra héðan og Lofoten.

Annars vil ég bara nota tækifærið og óska Gyðu og Benna innilega til hamingju með litlu dótturina sem þau eignuðust núna þann 16. apríl síðastliðinn. Svo stolt af þér Gyða mín.

Vona að þið hafið það sem best heima á Fróni. Hlakka til þess að sjá ykkur.

Kv. Anna Guðbjört